Bíddu bíddu... ţađ er komiđ nýtt blogg OMGHildur Guđjónsdóttir
Já komið þið öll blessuð og sæl!!!
Við erum nú meiri bloggararnir
Við höfum ekki sagt frá neinu síðan í Kína, svo hér mun vera farið gróflega í gegnum það sem hefur gerst hér í Singapore.
En já ævintýrið heldur áfram og alltaf lendum við í nýjum aðstöðum sem við þurfum að greyða úr. Leiðinlegt á tímabilum en reynslunni ríkari og helmingi jákvæðari eftir á.
Þegar við komum frá Kína tók mikill lærdómur á móti okkur, svo vikurnar fóru í að læra og mæta í skólann. Auk þess þurftum við, íslensku félagsverurnar, að taka fullan þátt í félagslífinu. Alltaf voru partý á miðvikudögum sem við enduðum oftast með að fara í. Ásamt því gerðum við okkur glaðan dag og fórum út úr húsi um helgar. Allt gekk okkur í haginn og við brostum alla daga þangað til að vandamálin helltust yfir okkur sem leiddu af sér mikla heimþrá og niðurdregnar kvöldstundir. Kosturinn var þó að við gátum dregið hvora aðra upp og hjálpuðumst því mikið í gegnum vandamálin, sem eru úr sögunni í dag.
Við ákváðum að fá okkur nýja íbúð og gera eins gott úr því sem við höfðum og hægt var. Við vorum svo heppnar að finna þessa litlu sætu íbúð sem er við aðalgötuna í Singapore. Við nánast getum teygt okkur í skólan því hann er svo nálægt. Mjög ljúft. Íbúðin er æðisleg í alla staði, nú höfum við sett upp jólaskreytingar og Singapore actually feels like home J
Vinkona hennar Sibbu kom svo í heimsókn til okkar og var í um 10 daga hér í Singapore. Það var mjög gaman að fá heimsókn frá Íslandi/Danmörku. Hanna vildi skoða sem mest og upplifðum við margt með henni í fyrsta skipti. Eftir öll vandamálin opnuðust augu okkar aftur og sáum hvað við erum heppnar að vera hérna og ákváðum að njóta hverrar mínútu sem eftir er. Ótrúlegt hvað við stóðum stoltar með Hönnu sem var svo hrifin af „borginni okkar“. Fengum svipaða tilfinningu og Íslendingar fá þegar þeir eru stoltir af landi og þjóð. – haha við fengum Singaporskt þjóðarstolt –
Í gær kláruðum við svo SMU. Ótrúlegt hvað tíminn flýgur, líður alls ekki eins og heil önn sé liðin. Þegar við löbbuðum ánægðar niður Orchard road, nýkomnar út úr prófinu og gáfum hvor annari high five haha, beið okkur löng en góð kvöldstund. Við elduðum burritos fyrir fyrrum meðleigjendur okkar, Paul og Nick. Síðasta kvöldstund Pauls með íslensku stelpunum sínum eða svona eiginlega, munum reyndar hitta hann á gamlárskvöld. Sátum í góðra vina hóp og spjölluðum um allt og ekkert, fórum í ágætis drykkjuleiki þar sem síðasti dropinn af íslenska skotvíninu var drukkinn. Eins og vanalega var svo haldið á double O og mikið var dansað og sungið.
Okkar ferðaplan er svo að að eyða næstu 15 dögum í Singapore. Þar sem við ætlum að njóta þess að skoða borgina, labba um og sóla okkur á Sentosa J Þann 14. Desember er ætlunin að fara til Tælands. Munum við vera í Bangkok í nokkra daga þar sem þemað er túrismi, ætlum við í dagsferðir út fyrir Bangkok og fleira. Þann 21. Desember förum við svo til Phi Phi Island og höldum tæ-íslensk jól. Þar sem afslöppun er aðal þemað, ná sér í smá lit, kafa og fleiri activities. 27. Desember förum við svo aftur til Singapore og eyðum áramótunum hér eða líklegast á Sentosa. Það á eftir að vera sorglegt að kveðja Singapore og er alveg ábyggilegt að hingað kem ég aftur með fjölskylduna mína, Svo Mamma, Birna, Sigga, Jim og Ellen farið þið að búa ykkur undir Asíuferð af bestu gerð J
Þangað til næst
Kv. frá Singapore
Hildur
NO joke price....this is my last price.....Hildur Guđjónsdóttir
hæhæ og hó
Í gær komum við frá Kína eftir vel heppnaða ferð í borg Berglindar, Shanghai. Stoppuðum við þar í 10 daga og var hver dagur nýtt ævintýri. Við lentum á fimmtudegi og strax um kvöldið var farið í veislu með forsetanum út af Ólympiuleikum fatlaðra sem haldin var í Shanghai þetta árið. Var þessi kvöldverður veisla fyrir keppendurna og Íslendingana sem voru þar og var Ólafur Ragnar Grímsson forsetinn okkar heiðursgestur þetta kvöld. Þessi kvöldverður var upplifun út af fyrir sig en þarna var boðið upp á 14 rétta máltíð, hver annarri verri. Ég get þó með stolt í hjarta sagt að ég kláraði einn réttinn en hinir voru eiginlega bara óætir. Samt sem áður át ég hráan fisk, krabba, kolkrabba og eitthvað fullt af ógeði. Eftir kvöldverðin fórum við með skiptinemunum úti á hótel og fengum okkur kokteil og svo á einhvern pöpp þarna úti, sem sagt Píanóbar Kína þar sem þarna var bara hvítt kjöt að dansa við ´80 tónlist. Föstudagurinn fór í að sækja hann Jakop vin okkar upp á flugvöll, ferðin þangað tekur um klukkutíma og eftir 2 klukkutíma bið eftir stráklingnum fórum við heim. Hann var hvergi sjáanlegur þar sem að flugvélinni hans seinkaði og þarna stóðum við eins og 3 vitleysingar að bíða eftir engu. Um kvöldið fórum við svo í partý til strákanna sem búa þarna úti, það var virkilega gaman og prufuðum við margar tegundir af kínversku víni...sem er horbjóður og ég mæli ekki með.
Laugardagur: Fórum á Special Olympics að hvetja áfram krakkanna okkar sem tóku þátt í sundi, það rosalega gaman að sjá og stemningin þarna var gífurleg, allir kátir og allir glaðir. Við reyndum að láta Berglindi taka þátt, en hún var eiginlega bara of feiminn og svo gleymdi hún sundbolnum sínum líka heima. Eftir ólympíuleikanna fórum við á hótelið hans Jakobs að sækja hann og sjáum við ekki eftir því. Fyrst fengum við rosalega góðan mat, svo fengum við frítt áfengi frá 6-8, eftir það fórum við upp á toppinn á hótelinu þar sem útsýnið var engu líkt, yfir alla Shanghai, og drukkum eins mikið og við gátum og átum góðan mat á hlaðborði frá 8-12 fyrir um 2000 kr íslenskar...sem sagt virkilega gott kvöld.
Sunnudagur: Krakkarnir fóru á Formúluna en við fórum að versla...við erum mjög ánægðar með að H&M skuli vera þarna enda eyddum við miklum peningum í þeirri búð. Þarna keypti ég mér föt fyrir 2700 yen sem eru um 21.000 kr íslenskar. Borgaði ég með peningum og röðin fyrir aftan mig starði öll á mig, þar sem að meðallaun í Kína á mánuði eru 1800 yen. Eftir góðan verslunarleiðangur fórum við og hittum formúlukrakkana á Fridays og átum, eftir það ákváðum við að taka smá dekur á þetta en ég fór í naglasnyrtingu en Hildur í fótsnyrtingu. Vel snyrtar og fínar fórum við svo í heimsókn til stelpnanna og horfðum á Vídeo
Mánudagur: Fórum í risastórt moll sem er svona markaður..ég og Hildur mættum þarna í sakleysi okkar, tilbúnar til að skoða og kannski kaupa einhverjar gjafir. Þegar við mættum tóku á móti okkur 5 kínverjar sem í raun leiddu okkur úr búð í búð og létu okkur ekki í friði. Þrátt fyrir stanslaust áreiti vorum við þarna allan daginn og þræddum bakherbergin með öllum fake vörunum. Þarna hittum við líka hann Jakob vin okkar. Eftir þetta vorum við svo dauðuppgefnar að við fórum heim, fengum okkur pizzu og spiluðum um kvöldið.
Þriðjudagur: Þessi dagur var að mínu mati okkar besti í Shanghai. Við fórum út á land og skoðuðum sveitirnar og Vatnaborgina. Vatnaborgin er borg frá 1000 þar sem öll húsin eru byggð við sýki, minnir hún þess vegna óneitanlega mikið á Feneyjar. Þetta er gullfalleg borg og alveg ótrúlega gaman að skoða hana en að mínu mati hefur túrisminn stolið frá henni mest megins af sjarma hennar. Alls staðar voru sömu búðirnar og Kínverjar að toga í mann og kalla "lúkka lúkka" eins og það sé það eina sem þau kunna í ensku, stöðugt áreiti og sjónmengunin sem af þessu hlýst gerir staðinn ekki eins töfrandi og hann var áður. Samt sem áður minn uppáhalds dagur.
Miðvikudagur: Fórum í siglingu um Shanghai á mjög svo skemmtilega útlítand skipi. Þetta var gaman þar sem að Shanghai er ótrúlega falleg borg á sinn stórborgar hátt. Hún er full af háhýsum en það sem gerir hana svona skemmtilega er að öll háhýsin eru ólík og hvert annað fallegri. Þarna sáum við líka Perluturninn í réttri mynd en það er hár turn í Shanghai sem er eiginlega bleikur á litinn, enda elskar Hildur hann haha. Eftir siglinguna fórum við í gamla bæinn en þar áttum við Hildur heima. Full gata af litlum básum að reyna að selja okkur eitthvað drasl og við að prútta eins og brjálæðingar. Ég verð að segja að ég og Hildur erum virkilega góðar í að prútta, allaveganna komum við okkur sjálfum mikið á óvart. Jacob fór um kvöldið til Peking og ég og Hildur fórum á ladys night með íslensku krökkunum sem var mjög gaman. Samt þreyttar eftir daginn fórum við snemma heim til að hlaða batteríin fyrir næsta dag.
Fimmtudagur: Berglind ákvað að gerast villingur og skrópa í skólann til að hanga með uppáhalds stelpunum sínum (mín orð en ég vona að það sé eitthvað til í þeim). Fórum við á stærstu verslunargötuna í Shanghai (held ég) og fórum í H&M hahaha og keyptum aðeins meira. Í þetta skiptið sem og í hið fyrra vorum við praktískar og keyptum föt sem við getum notað heima eins og úlpur og vettlinga hahaha. Við hliðiná H&M er svo sportsbar sem selur Gin og tónik á 80 kr.....þannig að við sátum þar í dágóðan tíma að sötra og fórum svo heim. Þegar heim var komið fórum við á Blue frog að borða og fórum að fákast. Við köllum það að fákast að bruna um götur Shanghai á litlu mótor hjólum Íslendinganna með vindinn í hárinu og attitúdið í hjartanu.
Föstudagur: Vöknuðum snemma og fórum í gamla bæinn til að kaupa gjafir handa ástvinum. Já þú heyrðir rétt, ef þú ert ástvinur færðu kannski pakka.....Hildur er að gera verkefni um fake vörur í skólanum þannig að við fórum í nokkur bakherbergi og tókum vídeó af vörunum og herbergjunum. Þegar maður fór í bakherbergin í gamla bænum gat maður séð hvernig í raun fólkið bjó þarna sem var að vissu leyti gaman en að mörgu leiti erfitt þar sem að það býr við mikla fátækt þarna. Eftir gamla bæinn fórum við í Jade temple sem er þarna í Shanghai en það er búddamusteri. Það var gaman þar sem að við fengum að sjá munkana íhuga í alvöru. Þar sem að við keyptum svo mikið drasl í Kína fórum við í síðasta bakherbergið okkar fyrir framan musterið og keyptum okkur stóra ferðatösku til að taka með heim.
Um kvöldið var svo haldið lokahóf fyrir okkur heima hjá Berglindi, þar var drukkið meira kinverskt vín og spjallað og haft gaman...
Laugardagur: vöknuðum klukkan 6 til að fara upp á völl....komum heim til Singapore dauðþreyttar og sælar eftir vel heppnaða ferð til Berglindar okkar.
en núna er þetta orðið allt of langt.....þangað til síðar
adíós.....
p.s. ég smakkaði líka smokkfisk og kjúklingahjörtu.......hvenær ég fæ hundinn veit ég ekki, en mig hlakkar til :D
Wó sí bíngdárenHildur Guđjónsdóttir
Já á skíðum skemmti ég mér svo sannarlega. Ég var á skíðum í allan dag, sjóskíðum. En það gekk einhvern veginn svona fyrir sig… Koma sér af stað og detta, koma sér af stað og detta… loksins var ég hætt að detta og þeyttist ég um vatnið, um stund hélt ég að ég væri hinn eini sanni, sá sem getur labbað á vatninu. Þegar ég var byrjuð að ná góðum tökum á sjóskíðunum þeyttist ég um eins og í bíómyndunum og söng á skíðum skemmti ég mér tralalalaa, það er naumast. Að lokum komst ég þó að því að ég var ekki hinn eini sanni, báturinn stoppaði og ég sökk til botns. Vaknaði að lokum og fattaði að þetta væri hafði verið plat dagur í Singapore, já plat dagur auj… en þetta verður þó gert einhverstaðar í Asíu það er eitt sem er á hreinu. J
Hvað er betra en að eiga rólegan dag heima í heitu landi þar sem allir möguleikar eru fyrir hendi, allur heimurinn bíður manns, fólk á Íslandi sem og Kína (kannski ekki allur heimurinn en samt)? Ég hef komist að því að dvöl mín í Singapore er aðeins byrjun á einhverju stærra og meira, það er svo margt að sjá og margt að gera í þessum heima, maður á alltaf eftir að vera occupied. Já ég held að ég sé bara orðin occupied, held að ég sé komin á fast, ég er komin á fast við heiminn, það er ekkert lítið.
En ástæðan fyrir skrifum mínum er að við SIGURBJÖRG (bara fyrir Palla) erum að fara til Kína og leggjum við af stað út í himingeim um klukkan tvö að nóttu til á morgun. Við munum ekki komast í neinar tölvur og er því betra að láta fólk vita af sér before og svo after. Í Kína er planið að vera í Shanghai hjá henni Berglindi okkar, túra um sveitir til að upplifa Kína á réttan hátt (eins og kínversk vinkona okkar sagði okkur að gera) og vonandi komumst við að sjá Kínamúrinn. Við munum einnig snæða með forseta Íslands og frú, ekki amalegt það.
En ef þið viljið lesa eitthvað af viti og vita hvað hefur drifið á daga okkar þá skuluð þið lesa færsluna hér að neðan.
Kisses and misses
Hildur
hćhć og hóhóHildur Guđjónsdóttir
jii það er svo langt síðan við blogguðum síðast að ég veit hreinlega ekki hvar við eigum að byrja.... Við erum allaveganna búnar að fara í stórt próf, 3 ný moll, dýragarð, fiðrilda og skordýragarð, 4d bíó og upp í Carlsberg útsýnisturninn. Þá erum við líka búnar að fara á Raffles hótelið og fá okkur Singapore sling (þó fyrr hefði verið) en hann er guðdómlegur á bragðið og skil ég vel af hverju hann er svona frægur. Palli og Steini komu til okkar í heimsókn í 8 daga sem var æðislegt. Kvöldin fóru í að fara út að borða og rölta um borgina og skoða næturlífið. Auðvitað tókum við þá líka á miðvikudagsdjamm og vona að þeir hafi haft gaman af.Við erum nú búnar að redda okkur vísa til Kína en þegar við gerðum það urðum við að bíða í lengstu röð sem við höfum nokkurn tímann farið í.....ekki nóg með það heldur þegar röðin var loksins búin komumst við að því að við þurftum að fara í aðra röð. Hver lætur fólk bíða í km langri röð til að borga fyrir vísað og svo sendir það í aðra röð til að ná í vísað!!!! Einfaldlega heimskulegt....
Næsta föstudag er svo ferðinni heitið til Kína...ætlum við til Shanghai að hitta Berglindi og co og verðum við þar í um 10 daga...jeyjeyjey!!!!! við ætlum nú samt líka að ferðast um sveitirnar og skoða fallegu litlu borgirnar í kring.
Við fórum á bar þar sem stólarnir eru hjólastólar og drykkirnir eru í spítalalegum anda. Skotin eru þannig í stórum sprautum og svo eru kokteilarnir í svona pokum eins og eru notaðir þegar þú færð í æð. Hanga kokteilarnir þess vegna í svona dæmi sem þú getur dregið á eftir þér....tek samt fram að allt er drukkið hehe....
Annars er allt frábært að frétta og höfum við ekki yfir neinu að kvarta. Lífið hér er alltaf jafn yndislegt, við hreinlega elskum þessa borg meir og meir....
Saknaðarkveðjur frá Singapore....kossar og knús
Sibba
UpdateHildur Guđjónsdóttir
Staður; Singapore, SMU, school of economics, abnormal behavior class
Veður; Ótrúlega heitt, mikill raki, thanks god im inside
Skap; nokkuð róleg, mjög góðu, tilbúin til að draga í mig allar upplýsingar sem hægt er að fá
Hugsun; þegar ég var í sprautu í júlí og fannst svo langt þangað til að ég færi til Singapore. Nú er mánuður liðinn og hefur hann liðið svo hratt... margt búið að gera en margt eftir að gera!!!!!
Næst á dagskrá; bókasafnið, gera outlines í ritgerð...
Næsti atburður; Afmæli hjá Luke og kanadian hooker boy á miðvikudaginn...
Á dagskránni; steini og Palli koma á föstudaginn í viku heimsókn... Við förum til Kína 4. október og ferðumst um í tíu daga
Akkurat núna; er hlé og ég ætla að standa upp
Bæjó
HILDUR SÉRĐU LJÓSAKRÓNUNA....allt ađ gerast í Singapore :DHildur Guđjónsdóttir
Jæja þá var kominn tími á aðra færslu enda margt skemmtilegt búið að gerast. Þar á meðal má nefna fyrsta prófið, undirbúningur fyrir ritgerð, ferð í Ikea og svo auðvitað skólaferðalagið til Malasíu.
Ég og Hildur ákváðum einn daginn að skella okkur í Ikea og kaupa okkur eitthvað fallegt inn í herbergið okkar, svona til þess að það láti okkur líða eins og “heima”. Tókum við leigubíl þangað og þegar inn var komið leið okkur eins og við værum komnar aftur til Íslands. Við fjárfestum þar í nokkrum hlutum s.s. þunnum sængum, sængurfötum, kertum og kertastjökum. Fyndið að Ikea hér hefur sérstaka gæludýradeild og keyptum við okkur stóran góðan poka undir óhreinaþvottinn okkar einmitt í þeirri deild, ég held að hann eigi að vera undir hundamat en hverjum er ekki sama þar sem að hann mun nýtast okkur mjög vel. Við eigum örugglega eftir að fara oft í Ikea þar sem að þar er einnig að finna sænska matvöruverslun. Með glampa í augunum keyptum við okkur kjötbollur, sultur, nammi og kex og hefur þessi matur glatt okkar litlu hjörtu meira en margan getur grunað.
Á laugardaginn síðasta forum við svo með skólanum til Malasíu en það var frábært. Mikil keyrsla og þétt dagskrá gerði okkur reyndar virkilega þreyttar en þegar maður er í Malasíu má maður nú ekki kvarta undan svoleiðis. Fyrst var ferðinni heitið til Malakka sem er hálf óspennandi borg þarna en þar sáum við samt alveg ótrúlega fallegt búddha musteri. Eftir mjög heitan dag í Malakka fórum við svo til Kúala Lúmbur en þar sem við komum seint um kvöld fórum við fljótt að sofa enda þreyttar eftir erfiðan dag. Daginn eftir fórum við svo upp í fjórða stærsta turn í heimi og sáum KL frá öðru sjónarhorni. Singapore og KL eru að mínu mati mjög ólíkar þar sem að meira er um skýjaklúfa hérna í Singapore heldur en þar og tókum við strax eftir því hversu hrein Singapore virkilega er þegar maður var staddur í KL. Þá þarf þó ekkert að vera að KL sé eitthvað sérstaklega skítug heldur er það frekar það að Singapore sé ótrúlega hrein. Eftir turninn fengum við svo frían tíma til að versla og skoðuðum við okkur um í mollunum þarna og kíktum svo í china town. Þarna eru leigubílamenningin svo allt öðruvísi heldur en hér þar sem að í KL vill enginn leigubílstjóri keyra eftir mæli heldur reyna þeir endalaust að klekkja á manni. Við borguðum til að mynda tvisvar sinnum of mikið í leigubíla þarna en þó var það ekkert það mikið svo við grátum nú ekkert þennan pening. China town var fyndinn, rosalega mikið af fólki að reyna að pranga upp á mann fake vörum en china towninn hérna er ekki alveg þannig. Um kvöldið fórum við svo út að borða með liðinu og skelltum okkur í einn drykk á bar sem heiti the Loona bar. Hann var virkilega flottur með sundlaug og undir berum himni, sem betur fer ringdi ekki á meðan við vorum þarna. Mánudagurinn fór svo aðalega i keyrslu og komum við seint heim þreyttar og sælar eftir vel heppnaða ferð. Í fyrsta sinn síðan við komum út borðuðum við bara asískan mat í þrjá daga....verð að viðurkenna að það tók svolítið á, en við erum að venjast þessu ;)
Í gær var okkur boðið í afmæli þannig að við ákváðum að leggja okkur í smá stund áður en þangað væri haldið. Vaknaði ég upp við að húsið hristist og vakti Hildi. Kom í ljós að tveir jarðskjálftar urði í grend við Indónesíu, annar var upp á 7,9 á ríkter en hinn 8,2. Þeir fundust alla leið til Singapore og allir í húsinu okkar þustu út, margir hverjir á náttfötunum. Virtist fólk vera nokkuð skelkað út af þessi og hékk fyrir utan í þónokkurn tíma áður en þau heldur aftur inn. Við vorum auðvitað nokkuð hræddar líka en ákváðum að láta þetta ekki á okkur fá og eins og sönnum Íslendingum sæmir skelltum við okkur í afmæli til franska gaursins. Þar var svaka stuð og mikið hlegið og dansað. Þegar við fórum svo að tala um jarðskjálftann við liðið í partýinu virtist enginn hafa tekið eftir honum. Þarna vorum við heppnar að upplifa jarðskjálftaævintýrið í Singapore. Jaa við getum sagt heppnar þar sem þetta var ekkert alvarlegt hérna hjá okkur, ekki hefði ég viljað missa af þessari upplifun.
Kjánahrollurinn leikur samt enn um mig þegar ég hugsa um viðtalið við mbl.....eitthvað segir mér að hann eigi aldrei eftir að fara hahaha :D
Það sem mér finnst skrítið:
-Stúlkurnar setja aldrei klósettsetnuna niður….greynilega karlmanns paradís hérna..
-almenningssalerni sturtast niður af sjálfur sér…eins gott að vera fljótur að pissa annars skvettist allt út um allt
-Fórum í skiptinemapartý. Auðvitað klæddum við okkur aðeins upp, samt ekkert mikið, hefðum getað farið svona í skólann, máluðum okkur og litum faboulus út. Þegar í partýið var komið vorum við nú ekkert venjulegar, heldur fannst okkur við vera alltof fínar. Hinar skiptinemarnir voru allir í stuttbuxum og stuttermabol og flip floppers, allt í einu fannst okkur eins og túrista dress code væri í gangi og enginn hefði sagt okkur frá því.
-Að hafa gaseldavél…..bara pirrandi. Ætluðum að búa okkur til sænskar kjötbollur með kartöflumús áðan en neeeeeiiii, GASIÐ BÚIÐ!!!
Ching, rangi, rang - samasama- í pídjó cé céHildur Guđjónsdóttir
Indónesía, Bintan... hey fugl nei leðurblaka aaaaaaaaaaa
Jæja þá erum við komnar frá Indónesíu... ferðin gekk vel en þó ekki áreysnlulaust...
Sem sagt við ákváðum að fara til Bintan á fimmtudags kveldi, en Bintan er þriðja stærsta eyjan í Indónesíu og margt að sjá þar. Við byrjuðum að pakka hálftíma fyrir brottför, pöntuðum taxa og fórum niður. Þar byrjuðu vandamálin, við settumst inn í taxann en við vissum ekki hvert ferðinni var heitið og oft hugsaði ég hversu skipulagðar getum við verið... Jæja Berglind ákvað að hoppa upp og ná í nákvæma staðsetningu svo við yrðum pottþétt á réttum stað. Taxinn keyrði okkur á ”ferjuvöllinn” og við keyptum okkur miða í ferjuna, einungis 2000 kr. fram og tilbaka til Indónesíu og ferjan tók ekki nema 45 mínútur.
Það sem fæstir vissu var að við lögðum af stað án þess að hafa nokkuð hótel og komum ekki á áfangastað fyrr en átta að kvöldi til, tókum við þessu afar rólega og vorum vissar að við myndum fá hótel eða meira vonandi að við fengjum hótel.
Þegar kom að því að fara í tollinn á ”ferjuvellinum” áttum við Sibba ekki að fá að fara út úr landi, allt út af því að við höfðum skólapassann okkar ekki á okkur. Við stóðum í miklu ströggli við konuna sem vann þar, en með hvolpa-augunum mínum og meðleigjendum sem grömsuðu í dótinu okkar eftir skólapassanum komumst við út úr landi. Þetta tók heldur betur á taugarnar og nú vorum við að verða smeikar við að hafa ekki bókað hótel því when in Indonesía you are in Indonesía og ekki hægt að snúa við.
Með óheppnina umkringda okkur héldum við upp í ferjuna og af stað til Bintan, en mikill var öldugangurinn og við í litlu skipi. Sjóferðin var hræðileg og tvær gubbuðu, þetta átti ekki að taka enda. Ferjan leggur upp að landi og við komnar með til Indónesíu í fyrsta skipti, þetta var eins og stórum áfanga í lífi mínu væri náð eftir allt þetta vesen...
Á ferjuvellinum var ferðaskrifstofa sem úvegaði okkur hótel tvær fyrstu næturnar og vorum við á Nirwana resort hotel sem er mjög fallegt hótel, heppnin var aftur með okkur.
Fyrsta kvöldið fórum við á matsölustað sem var við hótelið og nutum þess að vera á fallegum stað, því á þessum tíma vorum við vissar um að við vorum í paradís, sem reyndist rétt. Fórum svo og löbbuðum um, spiluðum extra stórt snákaspil og tókum smá extra stóra skák. Eftir alla spilamennskuna vorum við svo extra þreyttar að við fórum snemma að sofa því að við ætluðum að nota morgundaginn vel.
Föstudagurinn var tekinn snemma, fórum í frábæran morgunmat sem við allar þurftum á að halda. Planið var að leggjast í sólbað og sleikja sólina en tókum eftir því að það var bar í miðri sundlauginni, settumst þar með fæturnar dinglandi í vatninu og sólina skýnandi á bakinu. Drukkum þar þrjá kokteila hver eða þangað til að dró fyrir sólu, klassískt.... Drykkirnir voru samt þessi virði, að drekka úr kókoshnetu og ananas er skemmtileg upplifun, það þarf svo lítið haha.
Eftir ágætis tíma á barnum ákváðum við að rölta um strendurnar og var eins og við værum klipptar inn í póstkort, virkilega einstök upplifun. Settumst inn á annað hótel í rólegheitum. Röltum svo tilbaka en ég og Berglind förum í nudd en Sibba í pedicure, very nice. Förum svo út að borða á fiskveitingastað og fengum misheppnaðan humar en góðar sjávaréttarnúðlur J Þar sátum við í nokkra tíma og ekki má gleyma með kokteil við hönd, staðurinn var þó einstakur að því leiti að hann er út á sjó eða hálfgerð bryggja sem er mjög rómatískt. Fórum svo heim til að gera okkur til fyrir Beach party. Ekki má gleyma því að Berglind hafði kynnst tvem heimamönnum sem vildu endilega eyða kvöldinu með okkur en við engan veginn þeim. Á endan þegar þeir höfðu elt okkur allt kvöldið sagði Berglind að við værum allar á föstu og ég trúlofuð, þeir hættu ekki en reyndar gerðu ekki flugu mein. Í strandarpartýinu hittum við fullt af öðrum skiptinemum sem við eyddum kvöldinu með og skemmtum við okkur ágætlega, kvöldið endaði þó þannig að við sátum inn í herberginu hennar Cicilju að spjalla.
Daginn eftir þurftum við að tékka okkur inn á annað hótel þar sem við leigðum kofa svakalega huggulegt. Fórum svo smá á sundlaugabarinn en þar hittum við Texas, Ástralíu og Rhode Island sem urðu miklir vinir okkur síðar um kvöldið. Fórum í svaka fínt hlaðborð og átum eins og svín, fjórar stelpur og um það bil 16 diskar. Engu að síður héldum við á Beach club og hittum vini okkar J mikið hlegið og mikið stuð.
Daginn eftir fórum við svo í brunch og djúpnæringu með nuddi í 90 mínútur sem var mjög kósý. Þurftum svo að taka rútu upp á ”ferjuvöll” en þar var óvæntur gestur. Berglind, sem sat í fyrstu röð, benti að glugganum og hélt að það væri fugl inni í rútunni. Nei alls ekki fuglinn reyndist vera leðurblaka og kom nær og nær og flaug yfir krádið, fram og tilbaka með viðeigandi öskrum þangað til að bílstjórinn náði henni út úr rútunni. Ferðin í ferjunni á leiðinni heim gekk alveg glimrandi og við vorum komnar heim um tíu á singaporskum tíma, sweet.
Síðustu tveir dagar hafa farið í að kveðja hana Berglindi okkar, því í dag fer hún til Kína. Á mánudeginum var okkur boðið í skemmtilegt matarboð þar sem við vorum um 20 manns að skemmta okkur, mikið fjör, mikið gaman. Héldum svo á Clarke Quay þar sem stuðinu var haldið upp til að verða fjögur.
Í gær fórum við svo þrjár út að borða á Hot Stone. Mjög skemmtilegur staður þar sem við elduðum matinn okkar sjálfar á heitum steini. Eftir indælis kvöldverð við ánna fórum við á brjálaða fílinn þar sem við hittum Texas, Ástralíu og vini.
En ég læt þetta duga í bili, margt fyndið sem hefur heyrst og gerst sem við þurfum að skrifa hér J
Btw. Förum til Malasíu um helgina til Malacca og Kuala Lumpur svo símarnir munu en og aftur ekki virka
Kv. Hildur
Bjakkedí bjakk, hvítur sandur og skiptinemapartýHildur Guđjónsdóttir
Eins og fyrri daginn hefur margt skemmtilegt gerst síðan við blogguðum síðast, enda erum við með eindæmum skemmtilegar skvísur... spurning hvort að þetta breytist eitthvað þegar að blessaða Berglind fer
Síðasta föstudag héldum við nokkurs konar innflutningspartý með strákunum okkar, þar sem að við höfum ekkert kynnst neinum það vel vorum við bara 5 í því...sambýlílingarnir og húshjálpin hún Berglind (mér finnst auðvitað að við ættum að kalla hana þræl en rannsóknir sýna að henni muni líða betur með lífið og tilveruna ef hún fær starfstitilinn húshjálp). Í partýinu fórum við í hinn svakalega skemmtilega leik Beer pong..en hann snýst um að henda borðtenniskúlu í glas andstæðingsins hinum meginn á borðinu. Þarf þá sá hinn sami að þamba drykkinn og heldur leikurinn þannig áfram. Strákarnir fóru nú eitthvað að bulla um að íslenskar stelpur gætu bara ekkert drukkið en við erum alfarið á móti þeirri staðhæfingu þar sem að við stóðum okkur þrumuvel í þessum blessaða leik.
Laugardagurinn var svo einn heitasti dagur sem við höfum haft hér í Singapore og þess vegna notuðum við auðvitað daginn í sólbaði...eða sko þar sem að ég varð svöng og fylltist þrá eftir súkkulaðiköku fór ég í mollið, Berglind ákvað að koma með mér og strákarnir. Hildur greyið tímdi þó ekki að yfirgefa sundlaugarbakkann og varð eftir. Um kvöldið fórum við svo að borða á Sentosa en það er paradísareyja rétt fyrir utan Singapore. Það var algjört æði, hvítur sandur, kokteilar, góður matur og já rauð hildur því greyið brenndist eftir veruna á sundlaugarbakkanum hehe hún varð of gráðug í brúnkuna stelpan en þrátt fyrir brunann skemmti hún sér vel og var ekki lengi að jafna sig.
Sunnudagurinn fór svo í sólbað eina ferðina enn við góðu sundlaugina okkar, í þetta skiptið var Hildur stutt úti en Berglind og ég fengum að liggja aðeins lengur og horfa á erlendan sundkennara í speedo kenna krökkunum hérna í húsinu sundtökin, flottur var hann en einhverja hluta vegna fengum við kjánahroll þegar við horfðum á hann....kannski það hafi verið speedóið. Kvöldið fór svo í afslappelsi þar sem að við þurftum að fara í skólann á mánudaginn. Keyptum við okkur tennisspaða og tókum nokkur hallærisleiki á vellinum okkar góða.
Mánudagurinn fór í skólann. Hildur greyið var eitthvað slöpp og fór fyrr úr skólanum þar sem að enginn heyrði í kennaranum fyrir hóstanum í Hildi. Loftræstingin í skólanum er svo öflug að hún fer alveg með hálsana á okkur stelpunum. Ferðin heim úr skólanum var svolítið fyndið þar sem að ég þurfti að taka strætó ein heim. Tók ég þá eftir hversu rosalega er horft á mann hérna....og hversu hvít ég virkilega er. Þegar ég labbaði hnarreist á leið í strætóskýlið var ég stoppuð og spurð á frönsku hvar Park Mall væri. Ok nr. 1 lít ég út fyrir að vera frakki og nr 2. þá lít ég greynilega út eins og innfæddur haha...þetta var samt fínt því þegar ég var spurðs loks á ensku gat ég sýnt fólkinu hvar Park Mall væri
Klöppum fyrir stelpunni sem býr í Singapore og er ekki lengur túristi, heldur hjálpar þeim ....klappklappklappÞegar ég loks kom út úr strætónum tók ég eftir að ég var ekki með lykla þannig að ég þurfti að labba stóran hring um hverfið til að fara inn um öryggishliðið. Ég var með snakk og kók í poka og labbaði um hverfið mönsandi á því. Allir og þá meina ég allir störðu á mig, annað hvort af því að ég var hvít eða af því að ég hámaði í mig nammi eins og mér væri borgað fyrir það. Ég toppaði þessa ferð svo með smápíkuskrækjum þegar að risastór drekafluga réðst á mig fyrir framan sundlaugarvörðinn. Hann hló og hló af kjánaskapnum í gráðgu stelpunni með snakkið.
Í gærkvöldi fórum við svo í skiptinemapartý í skólanum. Þar gátum við keypt okkur drykk og áttum að fá mat. Eins og sönnum íslendingum sæmir nenntum við nu ekki að bíða í röð eftir matnum þannig að við ákváðum bara að bíða um stund, en seisei nei maturinn kláraðist. Miður sín yfir leiðindunum ákvaðu fólkið sem stóð fyrir þessu að panta pizzu. Þegar að við áttuðum okkur á að pizzan væri komin í hús var hún líka búinn
Þannig að ekki fengum við neitt að borða það kvöldið. Drykkja og dólgslæti voru þó ekki langt undan og eignuðumst við fullt af skiptinemavinum, þannig að þetta kvöld fær prýðiseinkunnGerst hefur:
-Hildur steig næstum á risastóran frosk
-Leðurblaka réðst a okkur og var rétt hjá hausnum á mér.....:S
-Drekafluga réðst á mig haha
-önnur eðla er komin í hús
-D&G hefur yfirgefið okkur, frú tapað og týnt er miður sin greyið
-Lítil bleik snót sást í Singaporeskum súpermarkaði hjólandi á bleiku hjóli...."í alvöru kaupum það"
-aaaah og Berglind er hætt með Ronald og byrjuð með Óskari "leikara" hinum gula....myndir koma brátt inn af skötuhjúunum :)
Heyrst hefur:
-Ég fékk þá flugu í nefið....hhhaaa segir maður ég fékk þá flugu í höfuðið
-We should spend the day in bed and play monkey
-hóst, hóst
-vertu óhrædd, ég er ekki að fara að skaka mér á þér
-haha stelpur þetta verður að fara á bloggið ( heyrist ofboðslega oft en einhverra hluta vegna gleymist alltaf allt)
-Sko þetta er af því að talheilinn í hálsinsum er á undan heilanum í hausnum
-Actully it should be called hotland not iceland....
-We eat alot of sharks and drink pure alcahol ;) ....úbbs
-Yeah you can stay with me, I have a double bed hahahaha
-Should I put lotion on your back???
-Thats only what couples do
-óska mitt núna er Mcdonalds
Ţessi fćrsla heitir ekkert sérstaktHildur Guđjónsdóttir
Jæja, vá það er svo mikið búið að gerast síðan við blogguðum síðast að ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja. Hmmm númer eitt, við fengum kakkalakka í heimsókn. Hildur stökk upp á stól og æpti að enginn skildi fara að sofa fyrr en við næðum honum (by the way þá meinti hún, fyrr en Berglind hin sterka næði honum). Endaði það með því að ég kramdi hann milli stafs og hurðar á svalahurðinni ( hver er hin sterka núna )Kvöldið eftir fengum við svo stærðarinnar eðlu í heimsókn en greyið Hildur uppgvötvaði hana inn á baði. Þegar við ætluðum að ná henni hljóp hún á 100 km hraða inn í svefnherbergi okkar stelpnanna og týndist þar, þannig að hún gæti verið hérna ennþá...úff. AH já og Berglind þurfti að hreinsa gamalt geitungabú úr gardínunum okkar inn í svefnherbergi...hvað gerum við þegar hún fer.
Við höfum einnig skoðað næturlífið hérna og ég verð að segja að það er hreint ótrúlegt....okkur á sko ekki eftir að leiðast hér (skólinn gengur þó auðvitað fyrir hehe).
Í gærkvöldi fórum við svo í night safari...garðurinn var í frumskógi og fórum við með "lest" um skóginn og sáum hin ýmsu dýr, til dæmis tígrisdýr, ljón, gíraffa og mörg mörg fleiri. Þar sem þetta var um kvöld og dimmt var úti gátum við ekki tekið neinar myndir þar sem að við máttum ekki nota flassið og trylla hin villtu dýr.
Dagurinn i dag var svo eytt í útlendingastofnun og í verslunarleiðangur. Við erum komnar í fataparadís hérna i singapore...úff...mig langar að kaupa allt hérna :D
Heyrst hefur:
-Are you retarded or an icelandic?....where is your wheelcheer??? (
)-This was not funny....you dont do this to others peoples phones!!!! (Þarna var nafnlausri snót kennt almenna mannasiði og skömmuð fyrir dólgslæti )
-Me love you long time??? ( ooooh nei, hefur ekki enn gerst..enn bara draumur hehe)
-Have you paid the rent yet??
-Einhvern veginn talar Berglind öllum tungum í glasi...póllsku, norsku, dönsku...just name it...(þá held ég að hin klámfengnu séu notuð í næstum öllum setningum, ekki að ég viti það, ekki bý ég yfir þessum hæfileikum)
-The computer says noooooo
-There was a cockroach in the soda can.....bjakkedí bjakk
-Should I follow you home?
-Í alvörunni fyndu svitalyktina undir höndunum á mér, hún hefur aldrei verið jafn slæm
-Hey Berglind....hvar geymum við ísmolana....
-Ef einhver gaur er að trufla þig láttu mig fá hann og ég týni honum fyrir þig.
Gerst hefur:
-Ein kynnti sér Danmörku aðeins betur
-Ein fékk tvær blöðrur frá ungum pilti....munaði engu að bónorð fylgdi
-Ein er að spá í að hætta með Ronald McDonald, ef hún gerir það fær hún tvo í staðinn ( nokkurs konar tveir í staðinn fyrir einn tilboð í gangi)
-Við dönsuðum djarft in the Living room
-Ein fékk símanúmer frá tveimur lesbíum (og er nokkuð heit fyrir að hringja í þær)
-Við klæddum okkur í 3 risastóra græna regnstakka...í dýragarði fullum af fólki (en eins og maður segir "better be save than sorry" )
- Ein týnir öllu sem hún kemur við...erum að spá í að tattúvera check lista á ennið á henni, en það væri ekkert sniðugt þar sem að Mr. Long kennarinn okkar hatar tattú
-Þar sem við erum algjörar ljóskur misskildum við stundaskránna hræðilega.....
-Komum heim í dag úr verslunarleiðangri og drengirnir Paul og Nick höfðu tekið til!!!! allir að klappa fyrir stelpunum sem völdu rétta "rent boys"
-Gamall búddhamunkur réðst á eina okkar og gaf henni armband....í staðinn varð hun að gefa honum pening fyrir búddhamusteri
...jæja nóg í bili
Sibba
Plaza Pura, Singapura plaza ćj já plaza SingapuraHildur Guđjónsdóttir
Í Singapore…
- er allt svo auðvelt
- er fólkið svo nice, tala við mann hvar sem er, hvenær sem er og allir eiginlega of vingjarnlegir
- er ótrúlega heitt og mjög rakt – dæmi; ég er svo sveitt eftir labbitúrana að það lekur svitinn niður bakið fer í sturtu og mér líður vel á meðan þegar stigið er út úr sturtunni er maður aftur orðinn sveittur klístraður og sætur..
- er matarmeninngin svo allt allt öðruvísi en heima
- fær maður ekki kúltúrsjokk í fyrstu – held að það komi frekar síðar
- eru kakkalakkarnir glærir en ekki svartir
- eru margir ef ekki flestir kvenmennirnir drop dead fallegir
- eru stelpurnar eins og klipptar úr magasíni, háu hælarnir, kjóllinn og taskan í stíl er til staðar hvar sem maður er, meira að segja í skólastofunni
- komumst við Sibba ekki upp með druslu föt, alltaf þarf maður að vera fínn
- er maður öruggari en í öðrum Asíulöndum
- er hver grein einungis kennd einu sinni í viku, en við héldum að það væri tvisvar sinnum í viku, þar sem að við horfðum á próftöfluna og stundaskrána (dumass)
- er japanskur veitingastaður sem hefur allan viðbjóð upp á að bjóða – og auðvitað fórum við þangað því maður þarf að prufa allt (btw strákarnir völdu þetta)
- erum við orðnar vanar að vera einu hvítu manneskjurnar á svæðinu
- er tískan ótrúlega flott
- er svo ódýrt að versla skó að ég á bágt með að hemja mig (skófíknin svo mikil)… búin að kaupa fjögur pör :S
- er fullt af heillandi karlmönnum en konurnar hérna eru drop dead...
- verður maður öruggari og öruggari með hverjum deginum
- sættum við okkur við margt sem ekki þætti ásættanlegt heima á klakanum+
Á næstu þrem vikum ætlum við...
- að fara í night safari
- að kíkja út á lífið í kvöld, frítt fyrir kvennmenn að djamma á miðvikudögum, its crazy
- fara til Sentosa á laugardaginn
- ætlum við að reyna að fara í bus sem fer með okkur um alla Singapore
- förum við til Indónesíu (Balí) á miðvikud. eða fimmtudaginn í næstu viku
- er skiptinemapartý
- förum við til Malasíu með skólanum
- þurfum við að ráða maid
- og auðvitað ætlum við að standa okkur vel í skólanumJ
Akkurat núna...
- erum við í tíma, understanding societies
- erum við að kynnast danskri stelpu haha
- langar mér í sólbað
- horfum við út á verslunargötuna og væri ég alveg til í að fara þangað
- er leigjandinn okkar hangandi yfir okkur eins og vofa, vill helst vera með okkur alla daga 24/7
- á ég að vera að hlusta miklu meira en ég er að gera
- líta allir út fyrir að vera hlusta ýgt á hann Hoff
- þarf ég að hætta þessu og fara að fylgjast með
Singapore Hildur is out
